Erlent

Viðgerð Hubble þokast áfram

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Hubble-sjónaukinn.
Hubble-sjónaukinn.

Áhöfn geimskutlunnar Atlantis heldur áfram viðhaldsvinnu sinni við Hubble-sjónaukann og skipti í gær um búnað sem notaður er til að greina svarthol í geimnum en sá hefur verið óvirkur síðan árið 2004. Þarna var um að ræða fjórðu ferðina af fimm frá skutlunni að sjónaukanum svo nú styttist í að þessum ellefu daga langa leiðangri ljúki. Þetta er í síðasta skiptið sem viðhaldi er sinnt við Hubble og vonast menn til að hann haldist nú gangandi til ársins 2014.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×