Innlent

Mótmælendum fækkar - kveikt á neyðarblysum

Fækkað hefur talsvert í röðum mótmælanda.
Fækkað hefur talsvert í röðum mótmælanda.

Alls voru fimm mótmælendur handteknir og færðir á lögreglustöðina á Austurvelli fyrr í dag. Þeim var gefið að sök að hafa óhlýðnast skipunum lögreglunnar.

Einhverjir mótmælendur kveiktu á neyðarblysi en þá var einnig sprengdar púðurkerlingar.

Um hundrað manns mættu til þess að mótmæla Icesave-samkomulaginu umdeilda. Síðan bættist í og voru nærri þúsund manns þegar mest var. Nú hefur fækkað talsvert í hópnum að sögn fréttaritara Vísis.

Um tíu lögregluþjónar eru við Alþingi en inni takast þingmenn á um Icesave-samninginn.


Tengdar fréttir

Spyr hvort ráðherra hafi blekkt þingheim

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segist munu krefja Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra svara í þinginu í dag hví hann hafi sagt á miðvikudaginn var að engar formlegar viðræður væru þá hafnar í Icesave-deilunni.

12 þúsund mótmæla Icesave samningum á Facebook

Tæplega tólf þúsund manns hafa skráð sig í hóp á samskiptavefnum Facebook gegn Icesave samkomulaginu en hópurinn var stofnaður á föstudag. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, mun flytja munnlega skýrslu um samkomulagið á Alþingi í dag en á sama tíma hefur verið boðað til mótmælastöðu við Alþingishúsið.

Indefence hópurinn: Bretar beittu okkur þrýstingi í Icesavesamningum

Átta meðlimir hins svokallað Indefence hóps áttu fund með Svavari Gestssyni sem fór fyrir Icesave samninganefndinni í morgun. Ólafur Elíasson einn af meðlimum hópsins segir að eftir fundinn hafi þeir endanlega sannfærst um að samningarnir séu afar slæmir og það sé algjörlega óhugsandi að þingmenn geti með samvisku sinni skrifað undir fyrirliggjandi samkomulag. Hann segist hafa fengið það staðfest hjá einum af æðstu embættismönnum þjóðarinnar að Bretar hafi beitt okkur alþjóðlegum þrýstingi í samningaviðræðunum.

Skriflegt samkomulag um Icesave í október

Steingrímur J. Sigfússon flutti munnlega skýrslu varðandi Icesave-samningana á Alþingi fyrir stundu. Þar fór hann yfir aðdraganda Icesave reikninganna og sagði vandasamt að finna upphafspunktinn í því máli.

Alltaf betra að semja en deila

Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor segist hafa skilning á sjónarmiðum þeirra sem gagnrýna stjórnvöld fyrir að hafa ekki náð hagstæðari lendingu í Icesave-deilunni. „En það er líka gott að líta á þetta hinum megin frá,“ segir hann. „Ég er ansi hræddur um að menn tækju fram búsáhöldin ef Bretar hefðu verið með banka hér, farið á hausinn og neitað að borga innistæðurnar.“

Icesave-sátt rædd á Alþingi

Samkomulag um skuld­bind­ingar Íslendinga vegna Icesave-innistæðna verður til umræðu á Alþingi í dag. Baldvin Jónsson, sem er í stjórn Borgaraflokksins, hefur boðað til mótmæla á Austurvelli klukkan þrjú þar sem því er mótmælt að gengið verði að þessu samkomulagi.

100 á Icesave-mótmælum

Hundrað manns eru mættir á Austurvöll til þess að mótmæla Icesave-samkomulaginu sem var undirritað á miðnætti aðfaranótti laugardags.

Icesave-samkomulag rætt á Alþingi í dag

Samkomulag um skuldbindingar Íslendinga vegna Icesave-innistæðna verður til umræðu á Alþingi í dag klukkan þrjú. Boðað hefur verið til mótmæla á Austurvelli klukkan þrjú þar sem því er mótmælt að gengið verði að samkomulaginu.

Segja góðgerðarfélög ekki fá Icesave-bætur

Búist er við því að breska fjármálaráðuneytið greini frá því í dag að góðgerðarfélög sem áttu peninga á Icesave-reikningum í Bretlandi fái þá ekki bætta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×