Innlent

Indefence hópurinn: Bretar beittu okkur þrýstingi í Icesavesamningum

Breki Logason skrifar
Indefence hópurinn.
Indefence hópurinn.
Átta meðlimir hins svokallað Indefence hóps áttu fund með Svavari Gestssyni sem fór fyrir Icesave samninganefndinni í morgun. Ólafur Elíasson einn af meðlimum hópsins segir að eftir fundinn hafi þeir endanlega sannfærst um að samningarnir séu afar slæmir og það sé algjörlega óhugsandi að þingmenn geti með samvisku sinni skrifað undir fyrirliggjandi samkomulag. Hann segist hafa fengið það staðfest hjá einum af æðstu embættismönnum þjóðarinnar að Bretar hafi beitt okkur alþjóðlegum þrýstingi í samningaviðræðunum.

„Það er algjörlega ólíðandi að ekki sé búin til almennileg samningsstaða fyrir þessa samninga enda sést það á niðurstöðunni sem er mjög fyrirsjáanleg," segir Ólafur og bendir á að ekkert hafi verið tekið tillit til hryðjuverkalaganna sem Bretar settu á okkur. Hann segir meðlimi Indefence vera gríðarlega ósátta og séu nú á leið niður við Alþingi að mótmæla.

„Við leggjum áherslu á það að þingmenn séu ekki hræddir við að neita þessari ábyrgð og það sé í raun mjög eðlilegt. Það eina sem það hefur í för með sér er að við sendum þá aftur að samningaborðinu til þess að ná í betri samning," segir Ólafur en hópurinn vann að bæklingi í alla nótt sem þeir ætla að afhenda þingmönnum og vilja helst hitta þá til þess að ræða þessi mál.

Ólafur segist hafa fengið staðfest frá einum af æðstu embættismönnum þjóðarinnar að ástæða þessarar niðurstöðu sé meðal annars sú að Bretar séu að beita okkur alþjóðlegum þrýstingi sem hafi meðal annars verið gert í gegnum Alþjóða gjaldeyrissjóðinn.

Hann segir einnig að undanfarna daga hafi hann fengið fjöldann allan af símtölum frá fólki í æðstu stöðum kerfisins sem sé afar áhyggjufullt yfir hugsanlegum afleiðingum þessa samnings.

„Menn hafa til dæmis velt því fyrir sér hvað gerist ef neyðarlögin standast ekki. Við gerum verulegar athugasemdir við það að engir fyrirvarar eru í samningnum um að neyðarlögin haldi. Það eru Hollendingar staddir hér á landi sem áttu yfir 10 milljónir inni á reikningum sínum sem ætla í mál við ríkið útaf neyðarlögunum. Ef þau eru dæmd ógild gætum við lent í auka greiðslu upp á allt að 400 milljarða króna svo eitthvað sé nefnt."

„Stóra spurningin er síðan sú að nú er allt að fjara undan Gordon Brown. Er þetta þá rétti tíminn til þess að menn séu að gera eitthvað samkomulag um miðjar nætur við þessa menn, maður botnar ekkert í því," segir Ólafur að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×