Bráðabirgðastjórn tekur við í Tékklandi 9. maí 2009 18:04 Jan Fischer er forsætisráðherra Tékklands til bráðabirgða. Mynd/AP
Bráðabirgðastjórn tók við völdum í Tékklandi í dag. Henni verður falið að stjórna landinu fram að snemmbúnum þingkosningum í október. Fyrri stjórn hrökklaðist frá völdum í mars eftir að þing samþykkti vantraust á hana. Stjórnin hafði þá mátt sæta mikilli gagnrýni vegna aðgerða í baráttunni við áhrif alheimskreppunnar í Tékklandi. Vaclav Klaus, forseti landsins, sagði í dag að þar með væri bundinn endir á stjórnmálalega óvissu í landinu eftir fall síðustu stjórnar. Nú væri hægt að snúa sér að mikilvægum úrlausnarverkefnum fyrir land og þjóð. Kosningar hefðu verið haldnar í Tékklandi um mitt næsta ár en er flýtt vegna stjórnarkreppunnar. Samkvæmt samkomulagi stærstu stjórnmálaflokka á tékkneska þinginu verður Jan Fischer, yfirmaður tékknesku hagstofnunnar, forsætisráðherra í bráðabirgðastjórninni. Hann mun ekki tengdur neinum stjórnmálaflokki á þingi. Hann nýtur stuðnings tveggja stærstu flokkanna á þingi til starfsins. Þrír stærstu flokkar Tékklands völdu aðra ráðherra í ríkisstjórnina en saman eru þessir flokkar með ríflegan meirihluta á þinginu. Tékkar eru nú í forsvari fyrir Evrópusambandið fram til loka júní. Vaclav Klaus, forseti, mun nú á meðan koma fram fyrir hönd Tékka á vettvangi Evrópusambandsins í stað forsætisráðherra Tékklands í ljósi þess að bráðabirgðastjórn er við völd og ekki kjörinn fulltrúi í embættinu. Klaus hefur löngum haft efasemdir um Evrópusambandsaðild Tékka og telja stjórnmálaskýrendur að áhugavert verði að sjá hvernig hann taki á þessu nýja hlutverki. Klaus mun þurfa að stýra mörgum mikilvægum fundum fyrir Evrópusambandið þar á meðal fundum með leiðtogum Kína, Rússlands og Suður-Kóreu.
Mest lesið Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Innlent Fleiri fréttir Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Sjá meira