Erlent

Chavez heldur áfram að þjóðnýta

Hugo Chavez, forseti Vensúela, segir að fyrirtækin hafi ekki þjónustað olíufyrirtækin á réttu verði.
Hugo Chavez, forseti Vensúela, segir að fyrirtækin hafi ekki þjónustað olíufyrirtækin á réttu verði. Mynd/AP
Hugo Chavez, forseti Vensúela, hefur fyrirskipað hernum að taka yfir fyrirtæki sem þjónusta olíufyrirtæki í landinu, en fyrirtækin eru mörg hver í erlendri eigu. Rúm tvö ár síðan að forsetinn þjóðnýtti gas- og olíuframleiðslufyrirtæki Venezúela.

Að mati forsetans hafa fyrirtækin ekki þjónustað olíufyrirtækin á því verði sem ríkisstjórnin hafði ákveðið.

Hundruð báta, fjölmargar hafnir og rúmlega 8000 verkamenn eru nú undir beinni stjórn hersins.

Venezúela er auðugt af olíu og fjórði stærsti útflytjandi hráolíu til Bandaríkjanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×