The Sun vandar Íslendingum ekki kveðjurnar 20. desember 2008 09:00 Björgólfur Guðmundsson og Eggert Magnússon eru hluti af því tíu manna teymi sem lagði fjárhag West Ham í rúst að mati The Sun. MYND/Nordicphotos/getty „
Heyra mátti öskur frá blóði drifnum Upton Park þegar Íslendingarnir tilkynntu að þeir hygðust selja West Ham." Svona hefst stór úttekt sem birtist í breska blaðinu The Sun. The Sun stillir þeim Björgólfi Guðmundssyni og Eggerti Magnússyni upp í tíu manna byrjunarliði l, sem hafi lagt fjárhag hins fornfræga knattspyrnufélags West Ham í rúst. Eins og kom fram í fjölmiðlum á fimmtudag hefur Eggert kært Björgólf fyrir að standa ekki við lokagreiðslu upp á 200 milljónir íslenskra eftir að hann var rekinn úr starfi stjórnarformanns knattspyrnufélagsins. The Sun dregur þá báða til ábyrgðar fyrir „Hammers house of Horrors" eins og það er orðað í blaðinu en það myndi útleggjast á íslensku sem hryllingsmynd Hamranna. En félagið er alla jafnan kallað Hamrarnir á Bretlandseyjum. „Ólíkt flestum hryllingsmyndum er ekki bara einn vondur karl. Heldur eru þeir tíu. Tíu Drakúla greifar sem hafa mergsogið West Ham," skrifar blaðamaður The Sun. Þeir Björgólfur og Eggert eru þar efstir á blaði ásamt fyrrum stjórnarformanninum Terry Brown og íranska kaupsýslumanninum Kia Joorabchian. Blaðamaðurinn skautar yfir skrautlegan tíma Íslendinganna hjá Lundúnaliðinu. Segir að Eggert hafi eytt þvílíkum fjárhæðum í leikmenn að það hefði mátt halda að hann óttaðist að leikmannakaup kæmust brátt úr tísku. „Alan Curbish-ley var bara afhentur óútfylltur tékki og boðið að kaupa hvern þann leikmann sem hann vildi," skrifar blaðamaður The Sun. Eggert var síðan látinn víkja úr stóli stjórnarformannsins í september 2007 og Björgólfur tók við. Að sögn blaðamannsins kom það honum í opna skjöldu hversu miklum peningum Eggert hafði eytt. „En maður hlýtur að spyrja sig af hverju enginn úr stjórninni tók í taumana þegar menn sáu í hvað stefndi," skrifar blaðamaður The Sun og bætir því við að það eigi ekkert að koma Björgólfi sérstaklega á óvart hversu illa til hafi tekist, hann hafi ágætis reynslu af slæmum fjárfestingum eins og ævintýrinu í kringum ferðaskrifstofuna XL sem hafi þegar kostað West Ham fimm milljónir punda. The Sun leyfir sér að efast um að það gangi eitthvað vel að finna kaupanda, sá hinn sami þurfi að súpa seyðið af dómsmáli Carlos Tevez. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bíó og sjónvarp Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira