Rasmussen orðaður við forsetastól ESB Atli Steinn Guðmundsson skrifar 2. maí 2008 23:17 Anders Fogh Rasmussen hittir Ólaf Ragnar Grímsson forseta á Bessastöðum árið 2003. MYND/Gunnar V. Andrésson
Ýmsir evrópskir fjölmiðlar eru teknir að orða danska forsætisráðherrann Anders Fogh Rasmussen stíft við stórar stöður innan Evrópusambandsins eða Atlantshafsbandalagsins. Lífseigust er kenningin um að Rasmussen setjist í sjálfan forsetastól ESB áður en langt um líður. Brusselska dagblaðið European Voice og breska ríkisútvarpið BBC eru meðal þeirra fjölmiðla sem nefnt hafa Rasmussen sem ákaflega líklegan kandídat í stöðuna og fleiri fylgja nú í kjölfarið. Sjálfur tekur hann ekki nema í meðallagi undir þennan þráláta orðróm og sagðist í viðtali við danska TV-Avisen í síðustu viku ekki vera á leiðinni í neina alþjóðlega stöðu hvað sem liði tilraunum hinna og þessara til að koma sögusögnum um það á kreik. Svar hans við spurningu um hvort hann myndi hafna slíkri stöðu var þó ekki ótvírætt: „Ég hef sagt það sem segja þarf um þetta mál. Mér finnst ég ekki geta orðað það skýrar að ég er ekki kandídat." Til áréttingar bætti hann því við að ekki væri á dagskrá hjá honum að hverfa úr danska forsætisráðherrastólnum. Jyllandsposten greindi frá þessu.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Fleiri fréttir Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Sjá meira