Erlent

Málaliðinn Simon Mann hlaut 34 ára fangelsisdóm

Breski málaliðinn Simon Mann var dæmdur í 34 ára fangelsi fyrir að hafa skipulagt valdarán í Miðbaugs-Gíneu í Afríku árið 2004.

Mann hefur ætíð neitað því að hafa verið höfuðpaurinn í valdaránstilrauninni og bent á að líbanski vopnasalinn Eli Calil hafi staðið að baki tilrauninni.

Mann, sem er fyrrum foringi í sérsveitum breska hersins, var handtekinn ásamt rúmlega 70 málaliðum á flugvelli í Zimbabwe. Var hópurinn þá á leið til Miðbaugs-Gíneu.

Meðal þeirra sem komu við sögu málsins var Mark Thatcher sonur Margrétar Thatcher fyrrum forsætisráðherra Bretlands. Hann fékk skilorðbundinn dóm í Suður-Afríku fyrir að hafa tekið þátt í að fjármagna valdaránstilraunina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×