Herforingjarnir í Búrma draga lappirnar 8. maí 2008 07:52
Áhyggjur manna aukast dag frá degi yfir þeirri tregðu sem yfirvöld í Búrma virðast vera haldin til að samþykkja aðstoð erlendis frá vegna hamfarana sem riðið hafa yfir landið í kjölfar fellibylsins Nargis.Bandaríkjamenn hafa staðfest að flugvélar á þeirra vegum sem flytja eiga lífsnauðsynjar til landsins hafi fengið lendingarleyfi en lengi vel vildu yfirvöld í Burma ekki heimila flugið. Flugvélar á vegum Sameinuðu Þjóðanna bíða enn eftir leyfi. Bandarískur diplómat sagði ástandið á svæðunum sem verst urðu úti skelfilegt og að tala látinna gæti farið í hundrað þúsund þar sem ástandið versni með hverjum deginum sem líður án þess að fullnægjandi hjálp berist.Þeir hjálparstarfsmenn sem komist hafa til strandhéraðanna þar sem flóðbylgjan reið yfir segja skelfilega sögu. Rotnandi lík liggi sem hráviði út um allt og þeir sem komust af berjast hatramlega um drykkjarvatn og matvæli. Um milljón manns eru nú heimilislaus og enn eru stórir hlutar landsins mikið til undir vatni sem eykur mjög hættuna af smitsjúkdómum.Herforingjastjórnin í Rangoon hefur þráast við að taka við þeirri aðstoð sem þeim er boðin og meðal annars höfnuðu þeir tilboði bandaríkjamanna um að nýta herskip flotans í hjálparstarfið. Þá bíða fjölmargir hjálparstarfsmenn í Bangkok eftir landvistarleyfi inn í Burma.
Mest lesið Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Innlent Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Erlent Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Innlent Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Sjá meira