Ekki nægur stuðningur við Tempelhof í Berlín 27. apríl 2008 22:27 Tempelhof-flugvöllurinn er gríðarstór. MYND/AP
Útlit er fyrir að hinum sögufræga Tempelhof-flugvelli í Berlín í Þýskalandi verði lokað ef marka má fyrstu tölur úr kosningu um framtíð hans í dag. Um 21 prósent af kjóendum í borginni kusu gegn því að vellinum yrði lokað en fjórðungur borgarbúa þurfti að greiða atkvæði á þann hátt til þess að það yrði tekið til greina. Það skal þó tekið fram að borgarstjórnin í Berlín hafði lýst því yfir að kosningin í dag væri ekki bindandi. Stuðningsmenn vallarins höfðu vonast eftir góðri kjörsókn í dag svo sannfæra mætti borgaryfirvöld um að halda flugvellinum opnum áfram en þeim virðist ekki hafa orðið að ósk sinni. Af þeim sem kusu voru sex af hverjum tíu andvígir því að loka vellinum en 40 prósent því fylgjandi. Kjörsókn reyndist aðeins 36 prósent sem þýðir að tilskilinn fjórðungur borgarbúa lagðist ekki gegn honum í kosningunum. Borgaryfirvöld í Berlín vilja loka flugvellinum þar sem umferð um hann er lítil og auk þess fæst dýrmætt byggingarland með því að loka honum. Stuðningsmenn vallarins benda hins vegar á að hann geti vel nýst sem flugvöllur fyrir viðskiptalífið og stutt flug innan Evrópu. Þá hefur verið bent á sess flugvallarins í sögunni en hann notuðu bandamenn í upphafi Kalda stríðsins þegar Sovétmenn höfðu einangrað Vestur-Berlín. Var þá loftbrú flugvéla til flugvallarins með mat og aðrar nauðsynjar fyrir íbúa Vestur-Berlínar. Tempelhof-flugvöllur er sagður þriðja stærsta mannvirki í heimi á eftir Pentagon í Bandaríkjunum og Höll Ceausescus í Búkarest.
Mest lesið Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Veður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Innlent Fleiri fréttir Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Sjá meira