Íslenskur meintur byssumaður á Spáni 29. júní 2008 18:38
Íslendingur á Spáni hefur verið kærður til lögreglunnar þar, fyrir hótanir og að beina byssu að konu á götu úti. Fjallað er um málið í blaðinu Leader sem gefið er út á ensku á Costa Blanca svæðinu undir fyrirsögninni Living Hell. Þar lýsa bresk hjón samskiptum sínum við Íslending, sem kallaður er HH, en hann leigir af þeim fasteignir. Samkvæmt greininni auglýsti Íslendingurinn eignir til leigu undir því yfirskini að hann væri í vinnu hjá eigendunum. Þegar hann var beðinn um að hætta því sem og að greiða vandgreidda leigu brást hann hinn versti við og sagði lögreglu frá því að bresku hjónin væru með skotvopn heima hjá sér og gerði lögreglan húsleit hjá þeim í kjölfarið, þar sem ekkert fannst, engu að síður er málið á leið fyrir dómstóla. Eftir það segja hjónin í blaðinu að hótanir af hálfu Íslendingsins hafi færst í aukana, bæði hafi hann hótað að leggja fyrirtæki þeirra í rúst, sem og hótað fjölskyldunni meiðingum. Um þverbak hafi svo keyrt fyrir stuttu þegar breska konan var að sækja dóttur sína í skóla. Þá hafi Íslendingurinn ekið framhjá, en þegar hann sá konuna sneri hann við, hótaði henni og beindi að henni byssu, að henni sýndist. Vitni voru að atburðinum og hefur málið verið kært til lögreglu. Dóttir mannsins var í bílnum með honum þegar þetta gerðist. Í greininni er gefið í skyn að maðurinn stundi heimilisofbeldi. Þegar blaðið reyndi að ná tali af honum hótaði hann að kæra það til lögreglunnar og lagði á. Ekki hafi tekist að ná símasambandi við hann eftir það.
Mest lesið Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira