Talibanar banna sjónvarpsgláp Óli Tynes skrifar 13. maí 2008 10:46 Er.....hvað er nú aftur sjónvarp?
Talibanar í Afganistan hafa bannað íbúum í Logar héraði að horfa á sjónvarp. Logar er nálægt höfuðborginni Kabúl og Talibanar hafa þar töglin og hagldirnar. Talsmaður upplýsingaráðuneytis Afganistans sagði fréttamönnum að vopnaðir og grímuklæddir talibanar hefðu komið inn í bænahús í héraðinu og hótað fólki ofbeldi ef það hætti ekki að horfa á sjónvarp. Þeir sögðu dagskrár sjónvarpsstöðvanna vera and-islamiskar. Á meðan Talibanar réðu Afganistan bönnuðu þeir bæði sjónvarp, kvikmyndir og tónlist. Síðan þeim var steypt af stóli árið 2001 hafa sjónvarps- og útvarpsstöðvar rokið upp eins og gorkúlur. Undanfarna mánuði hafa Talibanar einnig skipað endurvarpsstöðvum fyrir farsíma að loka stöðvunum á kvöldin. Þeir segja að bandarískir hermenn noti farsímakerfið til þess að staðsetja þá. Þá hafa Talibanar einnig varað stúlkur við því að sækja skóla. Menntun kvenna var bönnuð meðan þeir réðu ríkjum.
Erlent Mest lesið Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Innlent Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Innlent Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Innlent Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Innlent „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Innlent „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Innlent Fleiri fréttir Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Íranar reyndu að stöðva danskt olíuflutningaskip Segir að Repúblikanar eigi að „þjóðnýta“ næstu kosningar Chomsky sagði Epstein að hann dreymdi um Karíbahafseyju Tunglskotinu frestað til mars vegna leka Húsleit hjá X í Frakklandi vegna barnaníðsmynda Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Bill og Hillary Clinton samþykkja að svara spurningum um Epstein Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Musk segir spænsk stjórnvöld hyggja á „þjóðarmorð“ Herða lög um brottvísanir: „Yfir á rauðu í von um að ljósið verði grænt“ Birtu nektarmyndir af ungum konum fyrir mistök Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur handtekinn í gær Efast um að öll Epstein-skjölin séu ekta „Njósnasjeik“ keypti Trump-félag og fékk flögur Yfirmaður flóttamannastofnunar segir af sér vegna Epstein-tengsla Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Leystu upp alla stjórnmálaflokka landsins Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Opna landamærin og fjöldi fluttur frá Gasa Sjá meira