Segir friðarviðræðum hafa farið aftur 21. apríl 2008 12:21
Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, segir friðarviðræðunum fyrir botni Miðjarðarhafs hafa farið aftur frá friðarráðstefnuni í Annapolis í Bandaríkjunum í nóvember í fyrra. Vandinn sé sá að Bandaríkjamenn og Ísraelar vilji ekki ræða við Hamas-liða. Carter hefur verið á ferð um Miðausturlönd. Þar hefur hann fundað með ráðamönnum og einnig leiðtogum Hamas-samtakanna. Á föstudaginn fundaði hann með Khaled Mashaal, einum æðsta leiðtoga samtakanna, sem er í útlegð í Sýrlandi. Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Ísrael hafa gagnrýnt Carter harðlega. Hamas-samtökin eru á lista ríkjanna tveggja yfir hryðjuverkasamtök og það stefna þeirra að ræða ekki við þau. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, neitaði að funda með Carter og það gerðu langflestir aðrir ísraelskir ráðamenn einnig en þó ekki Shimon Peres, forseti Ísraels. Á blaðamannafundi í Jerúsalem í morgun sagði Carter að Hamas-liðar væru reiðubúnir að samþykkja það að Ísraelar mættu búa í sínu ríki við hlið Palestínumanna í friði eins og það var orðað. Carter sagði Hamas-liða ekki hafa hug á að grafa undan tilraunum Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, til að semja um frið við Ísraela. Samtökin ætluðu heldur ekki að andmæla stofnun Palestínuríkis á Vesturbakkanum og Gaza-ströndinni. Cater sagði það hins vegar vandamál að Ísraelar og Bandaríkjamenn neituðu að ræða við Hamas-liða sem yrðu að koma að samningaborðinu. Forsetinn fyrrverandi sagði friðarviðræðunum hafa farið aftur síðan friðarráðstefna var haldin í Annapolis í Maryland-fylki í Bandaríkjunum í nóvember í fyrra. Landtökubyggðir hafi stækkað, vegartálmum hafi fjölgað og fangelsið nærri landamærum Ísraela að Gaza stækkað.
Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Fleiri fréttir Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Sjá meira