Erlent

Forseti Súdans kærður til Alþjóðaglæpadómstólsins

Omar al-Bashir, forseti Súdans.
Omar al-Bashir, forseti Súdans.

Omar al-Bashir, forseti Súdan, hefur verið ákærður fyrir þjóðarmorð, glæpi gegn mannkyninu og stríðsglæpi í Darfur af saksóknurum Alþjóðaglæpadómstólsins í Haag. Dómarar dómstólsins munu nú athuga hvort ástæða sé til þess að gefa út handtökubeiðni á hendur Bashir.

Stjórnvöld í Súdan viðurkenna ekki Alþjóðaglæpadómstólinn og hafa þegar neitað að afhenda tvo stjórnarliða sem dómstóllinn hefur áður kært.

Talið er að um þrjú hundruð þúsund manns hafi fallið í átökunum í Darfur og að meira en tvær milljónir hafi þurft að flýja heimili sín síðan að átökin hófust árið 2003.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×