Páfi átti fund með fórnarlömbum misnotkunar Atli Steinn Guðmundsson skrifar 18. apríl 2008 06:40
Benedikt páfi XVI átti í gær fund með hópi fólks sem misnotað hafði verið kynferðislega í æsku af kaþólskum prestum. Fundurinn átti sér stað í kapellu í Washington en páfi er um þessar mundir í heimsókn í Bandaríkjunum. „Ég sagði páfa að illkynja mein yxi í söfnuði hans og hann yrði að gera eitthvað í því," sagði Bernie McDaid, einn úr hópnum. Fólkið sagði að páfi hefði rætt við það á innilegum nótum og beðið það afsökunar fyrir hönd kirkjunnar. Að sögn manns sem var á staðnum var fundurinn tilgerðarlaus og hjartnæmur. Hann sagði Benedikt hafa tekið fólkinu einstaklega vel og tár hefðu fallið. Páfinn sagði kirkjuna þurfa að takast á við kynferðislega misnotkun af heiðarleika og sanngirni. Enn fremur sagði hann að kaþólska samfélagið yrði allt að leggjast á eitt til að lækna sárin. Benedikt fer til New York í dag og ávarpar þar þing Sameinuðu þjóðanna. Enn fremur mun hann halda messu á Yankee-leikvanginum og hefur fjöldi fólks þegar flykkst til borgarinnar til að verða vitni að því. CNN greindi frá.
Mest lesið Sundlaugargestur handtekinn Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Fleiri fréttir Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Sjá meira