Erlent

Nýjar fisktegundir í Eystrasalti vegna hlýnunar

Halldór Ásgrímsson.
Halldór Ásgrímsson.

Hlýnun jarðar og þar með sjávar gæti haft í för með sér að fisktegundir á borð við ansjósur og sverðfisk fari að veiðast í Eystrasaltinu.

Þetta er meðal þess sem kom fram á ráðstefnu um áhrif loftslagsbreytinga á fiskveiðar og fiskveiðistjórnun sem nú stendur yfir í Björgvin í Noregi. Yfir hundrað manns frá Norðurlöndunum, Evrópusambandinu og Rússlandi sitja ráðstefnuna.

Hlýrri sjór veldur almennt fjölgun í fiskistofnum en hættan er að stofnar hverfi af núverandi heimaslóðum síðum og flytji sig yfir á aðrar. Því gæti þurft að endurskoða núgildandi samkomulag um landfræðilega skiptingu veiðiréttinda milli þjóða sem gæti reynst erfitt. Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, var einn af frummælendum á ráðstefnunni og hann lagði áherslu á að Norðurlöndin stæðu saman og ynnu náið með Evrópusambandinu að þessu málum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×