Erlent

Margir vilja skíra skólphreinsun eftir Bush forseta

Hópur sá sem berst fyrir því að skólphreinsunarstöð í San Francisco verði skírð í höfuðið á George Bush bandaríkjaforseta hefur nú safnað yfir 10.000 undirskriftum í borginni til stuðnings þessu markmiði sínu.

Repúblikanar segja hálfgerða skítalykt af þessu máli og telja hugmyndina fráleita. Talsmaður hópsins segir hinsvegar að bandaríska þjóðin muni neyðast til að hreinsa upp skít eftir Bush næstu tíu til tuttugu árin eftir að hann láti af embætti. Því sé þetta viðeigandi bautasteinn eftir forsetaferil hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×