Þorgrímur Þráinsson í guðatölu á Skagaströnd 22. desember 2008 03:00 Þorgrímur Þráinsson svaraði spurningum krakkanna þegar hann las uppúr bók sinni, Þriðji ísbjörninn. Fæstar af þeim snérust um ísbirni enda segir Þorgrímur að krakkarnir hafi vitað allt um þá.
Þorgrímur Þráinsson las upp úr nýrri bók sinni á Skagaströnd á dögunum. Óhætt er að segja að hann hafi fengið höfðinglegar móttökur. „Auðvitað er ótrúlega gaman að fara svona norður yfir heiðar og gleðja heilt bæjarfélag,“ segir Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur með meiru. Hann endurnýjaði kynnin við Höfðahrepp á Skagaströnd á dögunum og las upp úr bók sinni, Þriðji ísbjörninn, fyrir krakkana í Höfðaskóla. Tilefnið var ærið enda höfðu nokkur félög í bænum ásamt sveitarfélaginu sjálfu ákveðið að gefa nemendunum bókina hans. Ekki að ástæðulausu enda skrifaði Þorgrímur bókina í kjölfar þess að tveir ísbirnir gengu á land í nærsveitum Skagastrandar. „Þetta var mjög skemmtilegt og krakkarnir voru ekkert sparir á spurningarnar,“ bætir Þorgrímur við. Adolf Berndsen, oddviti Höfðahrepps, segir að Þorgrímur hafi sett mjög skemmtilegan svip á bæjarlífið þegar hann dvaldist þar í sumar á listamiðstöðinni Nesi og skrifaði þar kvikmyndahandrit. „Já, hann setti mjög sterkan svip á samfélagið og blandaðist mjög vel inn í samfélagið, sat oft drykklangar stundir á kaffihúsum bæjarins og ræddi um landsins gagn og nauðsynjar við íbúana. Fólk hreifst mjög af þeim drifkrafti sem einkennir hann,“ segir Adolf og ljóst að Þorgrímur er nánast kominn í guðatölu meðal Skagstrendinga. Adolf segist hafa hrifist af því þegar hann jafnhenti heilli barnabók á örskammri stundu þegar ísbjarnarævintýrið gekk yfir. Sveitarfélagið, í samstarfi við þau félög sem keyptu bókina, hyggst nýta sér þann ferska andvara sem Þorgrímur kom með til bæjarins og ætlar að efna til smásagnakeppni strax í byrjun nýs árs.
Mest lesið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Tónlist Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Lífið Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Lífið „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Tónlist „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ Lífið Fleiri fréttir Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Sjá meira