Lífið

„Ég hef alltaf verið á galopnu fyrir þjóðinni"

Bryndís Schram og Jón Baldvin Hannibalsson.
Bryndís Schram og Jón Baldvin Hannibalsson.

Bryndís Schram leiðir lesendur um lönd og álfur í nýrri bók, Í sól og skugga, sem er einskonar minningasyrpa fremur en hefðbundin ævisaga.

Vísir hafði samband við Bryndísi, sem er framúrskarandi sögumaður sem hefur frá mörgu áhugaverðu og skemmtilegu að segja.

„Ég hef fengið mjög sterk viðbrögð við bókinni, fólk skrifar mér, hringir og hnippir í mig á götum úti. Þar að komu tveir frábærir ritdómar fyrir rúmri viku, sem mér þótti mjög vænt um, einn í Morgunblaðinu eftir Hrafn Jökulsson og annar í Fréttablaðinu eftir Jakobínu Davíðsdóttur," svarar Bryndís Schram þegar Vísir spyr hana út í viðbrögð við bókinni.

Hvernig finnst þér að galopna þig svona fyrir þjóðinni? „Mér finnst ekkert um það. Ég hef alltaf verið á galopnu fyrir þjóðinni. Nú er ég bara að gera upp og kem til dyranna eins og ég er klædd. En ég bendi á að þetta er ekki hefðbundin ævisaga, frekar skemmtisaga með alvarlegum undirtón. Ég er sögumaður og þátttakandi og þess vegna fer ekki hjá því að persóna mín skíni í gegn," svarar Bryndís.

Móðuramma áhrifavaldur

„Já, ég á mér fyrirmynd," svarar Bryndís aðspurð um hennar fyrirmyndir í lífinu.

 

„Eins og Hrafn bendir réttilega á í sínum dómi, þá tala ég mjög fallega um móðurömmu mína í bókinni. Hún er líklega sú manneskja sem hefur haft hvað sterkust áhrif á mig í lífinu og mótað mig til lífstíðar.

 

„Hún var fátæk alþýðukona, en ég vildi að ég byggi yfir því æðruleysi og göfuglyndi sem var hennar aðalsmerki." 

 

Jól Bryndísar í ár

„Um seinustu jól upplifði ég annars konar aðfangadagskvöld - ólíkt jólakvöldinu hennar mömmu sem ég hef alla ævi verið að herma eftir. Ég braut allar hefðir og leið svo ótrúlega vel. Ég vil halda því áfram, hafna viðjum vanans. Svo eru heldur engar rjúpur í ár," segir Bryndís að lokum.

 

 

 

Sjá umsagnir um bók Bryndísar hér.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.