„Ég hef alltaf verið á galopnu fyrir þjóðinni" 22. desember 2008 12:31 Bryndís Schram og Jón Baldvin Hannibalsson.
Bryndís Schram leiðir lesendur um lönd og álfur í nýrri bók, Í sól og skugga, sem er einskonar minningasyrpa fremur en hefðbundin ævisaga. Vísir hafði samband við Bryndísi, sem er framúrskarandi sögumaður sem hefur frá mörgu áhugaverðu og skemmtilegu að segja. „Ég hef fengið mjög sterk viðbrögð við bókinni, fólk skrifar mér, hringir og hnippir í mig á götum úti. Þar að komu tveir frábærir ritdómar fyrir rúmri viku, sem mér þótti mjög vænt um, einn í Morgunblaðinu eftir Hrafn Jökulsson og annar í Fréttablaðinu eftir Jakobínu Davíðsdóttur," svarar Bryndís Schram þegar Vísir spyr hana út í viðbrögð við bókinni. Hvernig finnst þér að galopna þig svona fyrir þjóðinni? „Mér finnst ekkert um það. Ég hef alltaf verið á galopnu fyrir þjóðinni. Nú er ég bara að gera upp og kem til dyranna eins og ég er klædd. En ég bendi á að þetta er ekki hefðbundin ævisaga, frekar skemmtisaga með alvarlegum undirtón. Ég er sögumaður og þátttakandi og þess vegna fer ekki hjá því að persóna mín skíni í gegn," svarar Bryndís. Móðuramma áhrifavaldur „Já, ég á mér fyrirmynd," svarar Bryndís aðspurð um hennar fyrirmyndir í lífinu. „Eins og Hrafn bendir réttilega á í sínum dómi, þá tala ég mjög fallega um móðurömmu mína í bókinni. Hún er líklega sú manneskja sem hefur haft hvað sterkust áhrif á mig í lífinu og mótað mig til lífstíðar. „Hún var fátæk alþýðukona, en ég vildi að ég byggi yfir því æðruleysi og göfuglyndi sem var hennar aðalsmerki." Jól Bryndísar í ár „Um seinustu jól upplifði ég annars konar aðfangadagskvöld - ólíkt jólakvöldinu hennar mömmu sem ég hef alla ævi verið að herma eftir. Ég braut allar hefðir og leið svo ótrúlega vel. Ég vil halda því áfram, hafna viðjum vanans. Svo eru heldur engar rjúpur í ár," segir Bryndís að lokum. Sjá umsagnir um bók Bryndísar hér.
Mest lesið „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Lífið „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Tónlist Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Lífið Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni Lífið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Lífið Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Lífið Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Lífið Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Lífið samstarf Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð Tónlist Próteinskammtur alltaf með í töskunni Lífið samstarf Fleiri fréttir Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Sjá meira