Erlent

Fíll gekk berserksgang - Þrír létust

Þrír Indverjar létu lífið í gær þegar fíll gekk berserksgang í musteri í bænum Trhissur á Suður Indlandi.

Fjöldi fólks var í musterinu enda hátíðísdagur Hindúa. Fílinn átti að nota í trúarlegri athöfn. Tveir musterisgesta urðu undir fílnum og létust þegar hann trylltist skyndilega en sá þriðji sem lét lífið var einn af eigendum fílsins. Hann varð fyrir fílnum þegar hann reyndi að koma í veg fyrir að fleiri yrðu á vegi hans.

Lögreglan veit ekki hvað olli því að fílinn trylltist svona skyndilega en hann róaðist sömmu síðar.

Fílar eru oft notaðir í túarlegar hátíðir sem þessar á Suður-Indlandi. Þeir eru þá skreyttir og málaðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×