Erlent

Reglubundið flug frá Kína til Taívans

MYND/AP

Fyrsta flugvélin í reglubundnu flugi frá Kína til Taívans lenti í morgun á eyjunni. Er þetta í fyrsta sinn í nærri 60 ár sem reglubundið flug er tekið upp á milli landanna.

Ríkisstjórnir í Taívan hafa í gegnum tíðina vilja skilja sig frá Kína og hefur landið eigin ríkisstjórn. Kínverjar hafa ekki viljað viðurkenna sjálfstæði Taívans og vegna stirðs sambands landanna hefur fólk þurft að fljúga á milli þeirra í gegnum þriðja land.

Með nýjum forseta, Ma Ying-jeou, hafa samskiptin við Kína batnað en hann hefur lagt áherslu sterkari tengsl á milli landanna á efnahagssviðinu. Aðeins verður þó flogið á milli landanna á föstudögum, laugardögum, sunnudögum og mánudögum og það á milli fimm borga í Kína og átta flugvalla í Taívan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×