Erlent

Betancourt grét af gleði

Fyrrum gíslinn Ingrid Betancourt grét af gleði þegar hún kom til Frakklands síðdegis í dag. Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti og eiginkona hans Carla Bruni tóku á móti henni á herflugvelli við París.

„Ég græt af gleði," sagði Betancourt á þessari tilfinningaþrungnu stundu.

Betancourt og fjórtán öðrum gíslum var á miðvikudag bjargað úr höndum kólumbísku uppreisnarhreyfingarinnar FARC. Betancourt, sem ólst upp í París og er franskur og kólumbískur ríkisborgari, var rænt árið 2002 þegar hún att kappi við Alvaro Uribe í forsetakosningum í Kólumbíu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×