Sérsveit skipuð gegn hnífaglæpum 4. júlí 2008 18:47
Átján ungmenni hafa fallið fyrir morðingjahendi í hnífaárásum í Lundúnaborg það sem af er þessu ári. Sextán ára piltur og tveir rúmlega tvítugir háskólanemar voru stungnir til bana í borginni í gær. Lundúnalögreglan hefur skipað sérsveit gegn hnífaglæpum í höfuðborginni. Morðingjarnir munu jafnaldrar fórnarlambanna í flestum tilvikum. Gengjastríð og kynþáttafordómum er helst um að kenna. Í gær var Shakilus Townsend sextán ára stunginn til bana þar sem hann var á gangi á götu í suð-austurhluta Lundúna. Vitni segja að fjögur eða fimm ungmenni, drengir og ein stúlka, á aldrinum fimmtán til nítján ára hafi ráðist á hann, barið og stungið. Vitni reyndu hvað þau gátu til að bjarga lífi stráksins en allt kom fyrir ekki. Hann kallaði á móður sína þar sem líf hans fjaraði út og sagðist ekki vilja deyja. Á máundaginn var upprennandi leikari, Ben Kinsella, sextán ára, stunginn til bana í norðurhluta Lundúna. Systir hans, þekkt sápuóperuleikkona úr þáttunum Eastenders, sagði í viðtali að hann hefði aldrei átt í útistöðum við neinn og iðullega hjálpað til við góðgerðarstarf móður þeirra fyrir vegalausa unglinga. Mörg hundruð Lundúnabúar gengu um götur borgarinnar til minningar um Kinsella og kröfðu borgaryfirvöld um aðgerðir. Lundúnalögreglan tilkynnti í dag að sjötíu og fimm manna sérsveit gegn hnífaglæpum og gengjum hefði verið skipuð. Hún hafi umsjón með málmleitartækjum á samkomustöðum ungmenna í borginni og geti leitað fyrirvaralaust á ungu fólki leiki grunur á að það beri hníf
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Brotist inn í garnverslun í Árbæ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Erlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Fleiri fréttir Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Sjá meira