Erlent

Níu bandarískir hermenn féllu í Afganistan

MYND/AP

Níu bandarískir hermenn féllu í bardaga við uppreisnarmenn í átökum í Afganistan í gær.

Uppreisnarmenn réðust á búðir hermannanna í héraðinu Kunar sem liggur að landamærunum til Pakistan. Þetta er versta einstaka mannfall hjá bandaríkjaher í Afganistan síðan árið 2001.

Uppreisnarmenn beittu eldflaugum, sprengivörpum og vélbyssuskothríð gegn hermönnunum en þeir á móti fengu aðstoð frá orrustuþotum og þyrlum. Bandaríkjamenn segja að umtalsvert mannfall hafi orðið meðal uppreisnarmannana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×