Erlent

Gekk berserksgang á gröfu í Jerúsalem

Lögreglan í Jerúsalem yfirbugaði manninn.
Lögreglan í Jerúsalem yfirbugaði manninn. MYND/AP

Tveir eru látnir eftir að maður ók gröfu á strætó og nokkra bíla í miðborg Jerúsalem í Ísrael í morgun.

Tugir eru sagðir sárir eftir tilræðið þar af sjö alvarlega. Lögregla mun hafa skotið manninn eftir átök í stýrihúsi gröfunnar. Fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins að skelfing hafi gripið um sig á götum Jerúsalem þegar maðurinn ók um á gröfunni og flýðu hundruð manna af vettvangi.

Fólk mun enn vera fast í bílum sem gröfumaðurinn velti og ók yfir. Lögregla lýsir manninum sem hryðjuverkamanni en frekari upplýsingar er ekki að fá af vettvangi að svo stöddu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×