Gere og Tutu meðal mótmælenda í San Francisco 9. apríl 2008 12:15
Hollywood leikarinn Richard Gere og Suður-afríski biskupinn Desmond Tutu voru meðal þeirra sem mótmæltu við komu Ólympíulogans til San Francisco í gærkvöldi. Skipuleggjendur ferðar Ólympíueldsins vítt og breitt um heiminn eru líklega farnir að sjá eftir öllu saman. Þúsundir manna mótmæltu mannréttindabrotum í Kína og yfirráðum Kínverja á Tíbet í San Francisco í gær, líkt og gert hefur verið í bæði Lundúnum og París. Fólkið hrópaði slagorð til stuðnings sjálfstæðu Tíbet og veifaði tíbeska fánanum. Mikil öryggisgæsla verður við hina tignarlegu Golden Gate brú í San Fransisco þar sem á að hlaupa með kyndilinn síðar í dag. Þá safnaðist mikill mannfjöldi saman í gærkvöldi á útifundi í miðbænum. Meðal þeirra sem þar töluðu var leikarinn Richard Gere, sem hefur verið búddisti og stuðningsmaður Dalai Lama, leiðtoga Tíbeta, í þrjátíu ár. Desmond Tutu, erkibiskup í Suður-Afríku, talaði einnig og hvatti ráðamenn til að sniðganga leikana. Það er hins vegar að frétta frá Peking að í morgun kom fylkisstjórinn í Tíbet fram á fréttamannafundi og varaði Tíbeta við að mótmæla þegar kyndillinn fer um Himalayasvæði Tíbets. Ef einhver reynir að valda vandræðum, sagði hann, þá munum við beita hörku. Og bætti við: „Við verðum miskunnarlausir." Hann sagði einnig að 953 hefðu verið handteknir í tengslum við uppþotin í Tíbet undanfarnar vikur.
Mest lesið RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Erlent Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Erlent Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Erlent Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Innlent Fullir í flugi Innlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots Innlent Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Fleiri fréttir Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Sjá meira