Erlent

Tilbúinn að draga sig í hlé ef ofbeldið verður stjórnlaust

Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta, segist munu draga sig í hlé ef ofbeldisaldan sem riði hefur yfir Tíbet undanfarna daga verði stjórnlaus. Þetta kom fram í máli hans á blaðamannafundi í Dharamsala í Indlandi í dag þar sem Dalai Lama dvelur í útlegð.

Forsætisráðherra Kína. Wen Jiabao, sakaði í dag Dalai Lama um að skipuleggja óeirðirnar í Tíbet og sagði að verið væri að reyna að koma höggi á Ólympíuleikana í Peking sem verða í haust.

Komið hefur til átaka milli mótmælenda, sem vilja að Tíbet verði sjálfstætt ríki, og öryggissveita kínverskra stjórnvalda í höfuðborginni Lhasa undanfarna daga. Tölur um fallna eru á reiki en síðast í morgun sagði útlagastjórn Tíbets að 99 væri látnir í átökunum, þar af 19 í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×