Erlent

Michael Jackson tókst að halda Neverland

Michael Jackson tókst á síðasta augnabliki að koma í veg fyrir að búgarður hans, Neverland, í Kaliforníu færi á nauðungaruppboð.

Að sögn lögfræðinga Jackson hefur hann komist að samkomulagi við lánadrottna sína sem gerir honum kleyft að halda Neverland.

Orðrómur hefur verið í gangi um að fótboltastjarnan David Beckham hafi áhuga á að kaupa Neverland. Það hefur hinsvegar ekki fengist staðfest.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×