Kosið á Spáni 9. mars 2008 12:56 Jose Luis Rodriguez Zapatero forsætisráðherra. MYND/AP
Spánverjar ganga að kjörborðinu í dag og kjósa til þings. Kannanir benda til þess að stjórn sósíalista haldi velli - en naumlega þó. Efnahags- og innflytjendamál hafa verið ofarlega á baugi í kosningabaráttunni í þetta sinn - ólíkt 2004 þegar hryðjuverkin í Madríd voru efst í huga kjósenda og urðu til að fella Jose Mari Aznar, forsætisráðherra, og mið- og hægristjórn hans. Við völdum tóku sósíalsita og Jose Luis Rodriguez Zapatero varð forsætisráðherra. Á kjörtímabilinu hefur hagvöxtur minnkað eftir mikla uppsveiflu síðasta áratug. Verðbólga hefur ekki verið jafn mikil í tíu ár og ekki fleiri atvinnulausir í átta ár. Íhaldsmenn hafa fyrir vikið lagt áherslu á málefni innflytjenda sem hafa hingað til ekki verið jafn áberandi í spænskum stjórnmálum. Sósíalistar hafa á sama tíma lagt áherslu á breytingar sem þeir hafa fengið í gegn í átt til frjálsræðis. Þeir hafa fest í lög hjónabönd samkynhneigðra, jafnrétti kynjanna og að hægt sé að hraða skilnuðum. Ekki hefur kosningabaráttan þótt spennandi. Zapatero þykir ekki sérlega litríkur stjórnmálamaður en þó með meiri kjörþokka en andstæðingur hans, Mariano Rajoy, leiðtogi Íhaldsmanna. Frambjóðendur hafa hvatt kjósendur til að nýta kosningarétt sinn í dag en þeir óttast að kjörsókn verði töluvert minni nú en áður. Kannanir benda til þess að sósíalistar haldi velli en með naumindum þó. Kjörsókn gæti þó haft áhrif þar. Telja stjórnmálaskýrendur að ef mjótt verði á munum gæti jafnvel farið að minni flokkar á þingi - svo sem eins og Sameinaðir vinstri menn eða þjóðernisflokkar Baska og Katalóna - ráði hvernig stjórn verði mynduð. Engin kosningabarátta var háð á föstudaginn - síðasta daginn sem það var leyfilegt - vegna morðs á fyrrverandi borgarfulltrúa sósíalista í bænum Mondragon í Baskahéruðum Spánar á föstudag. Basknesku aðskilnaðarsamtökunum, ETA, er kennt um. Ódæðið hefur varpað skugga á kosningabaráttuna.
Mest lesið Tvennt flutt á sjúkrahús eftir árekstur við Eyrarbakka Innlent Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Innlent „Finnst allt benda til þess að þetta sé að lognast út af“ Innlent Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Erlent „Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Innlent Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Óttast að Smalaholtsskógur verði Garðabæ að bráð Innlent Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Innlent Fleiri fréttir Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Bandarískur stjúpsonur El Mencho fékk krúnuna Hittler mætir Zielenski í frönskum bæjarstjóraslag Útskrifuð fyrir fimm mánuðum en neitar að fara Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Tilbúnir til að sprengja flugbrautir á Grænlandi Farage í klandri vegna myndbanda fyrir nýnasista og öfgamenn Banksy opinberaður, enn einu sinni Fjárframlög til BBC World Service aukin vegna upplýsingaóreiðu Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ Sjá meira