Annþór býður í afmæli - löggan leitar að staðnum 15. febrúar 2008 14:40 Annþór Kristján Karlsson
Handrukkarinn Annþór Kristján Karlsson sem lögreglan leitar nú eftir að hann strauk úr fangaklefa við Hverfisgötu í morgun, hefur boðið til síðbúinnar afmælisveislu í kvöld. Annþór sem varð 32 ára þann 1.febrúar sl. var handtekinn á afmælisdegi sínum og gat því ekki fagnað áfanganum. Nú hefur hann hinsvegar boðið til veislu í kvöld en heimildir Vísis herma að lögreglan leiti nú að staðsetningu afmælisveislunnar. Lögreglan á Suðurnesjum vildi ekkert tjá sig um málið að öðru leyti en að víðtæk leit stæði yfir að strokufanganum. Annþór sem sat í gæsluvarðhaldi átti að mæta fyrir dómara síðdegis þar sem taka átti fyrir gæsluvarðhaldsúrskurð hans sem rennur út í dag. Annþór strauk af lögreglustöðinni á Hverfisgötu með því að brjóta sér leið í gegnum rúðu á annarri hæð. Í rúðunni var öryggisgler sem hann braut og notaðist hann við band til þess að koma sér niður húsvegg lögreglustöðvarinnar. Þó er ljóst að hann hefur stokkið úr töluverð hæð. Annþór var klæddur í hvítan bol, gallabuxur og talið er að hann sé í strigaskóm. Annþór er 186 sm og ljóshærður. Hann er talinn hættulegur. Þeir sem geta gefið lögreglu upplýsingar um ferðir Annþórs eru beðnir að hafa samband í síma 800-1000 eða 4201800.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Fleiri fréttir Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Sjá meira