Versta útkoma Verkamannaflokksins í 40 ár 2. maí 2008 12:16
Breski Verkamannaflokkurinn beið afhroð í sveitarstjórnarkosningum sem fram fóru þar í landi í gær. Flokkurinn hefur ekki fengið verri niðurstöðu í slíkum kosningum í yfir fjörtíu ár.Kosið var um fjögur þúsund eitthundrað og tvö sæti í hundrað fimmtíu og níu sveitastjórnum í kosningunum sem fram fóru í gær. Á sama tíma og verið er að telja atkvæði um allt land gerir útgönguspá breska ríkisútvarpsins BBC ráð fyrir að Verkamannaflokkurinn hafi minnst fylgi þriggja stóru flokkanna og fái aðeins 24 prósent atkvæða. Frjálslyndir hljóti 25 prósent atkvæða en Íhaldsflokkurinn komi langbest út úr kosningunum og hljóti 44 prósent atkvæða.Niðurstöður þar sem búið er að telja sína að íhaldsmenn hafa bætt við sig 144 sætum á meðan að Verkamannaflokkurinn hefur tapað álíka mörgume ða 145.Brown kennir erfiðleikum í efnahagsmálum umNiðurstöður kosninganna eru mikil vonbrigði fyrir Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands og flokksfélaga hans í Verkamannaflokknum. Þegar hann ræddi við fréttamenn fyrir hádegi kenndi hann erfiðleikum í efnahagsmálum landsins meðal annars um slæma niðurstöðu.Kjósendur vilji vera vissir um að ríkisstjórnin geti stýrt þjóðinni í gegnum erfiða tíma og vildi hann fullvissa þá um að aðgerðir á vegum ríkisstjórnarinnar til að ná tökum á ástandinu yrðu kynntar á næstu mánuðum.David Cameron, formaður Íhaldsflokksins, og félagar hans hafa hins vegar haft ástæðu til að fagna í dag. Brown hefur þó nokkurn tíma til að jafna sig því hann þarf í síðasta lagi að boða til kosninga 2010.Þrátt fyrir að niðurstöður kosninganna séu víða orðnar ljósar er enn mikil spenna í Lundúnum þar sem hart er barist um borgarstjórastólinn og verða tölur þar ekki birtar fyrr en í kvöld. Þar sækist vinstrimaðurinn Ken Livingstone - betur þekktur sem Rauði-Ken - eftir umboði kjósenda þriðja kjörtímabilið í röð.Höfuðandstæðingur hans er íhaldsmaðurinn Boris Johnson, þingmaður, fyrrverandi ritstjóri og sjónvarpsþáttastjórnandi. Hann hefur getið sér orð sem léttlyndur stjórnmálamaður og því héldu margir að hann væri að grínast þegar hann gaf það út að hann ætlaði í slaginn. Síðan þá hefur honum vaxið ásmegin og hefur honum verið spáð sigri.
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira