Erlent

Maður fæddi stúlku

Thomas Beatie
Thomas Beatie

Thomas Beatie, sem fæddist sem kona en lifir sem karlmaður eftir að hafa undirgengist kynskiptaaðgerð, fæddi stúlkubarn á spítala í Oregon í dag.

Eftir að Beatie ákvað að verða karlmaður lét hann fjarlægja brjóst sín, en hélt þó æxlunarfærunum af því hann vildi einn daginn eignast barn.

Meðgangna hans hefur vakið heimsathygli og kom Beatie meðal annars fram í þætti Oprah Winfrey og sagði frá reynslu sinni.

Bæði Beatie og stúlkubarninu heilsast vel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×