Erlent

McCain biður stuðningsmenn sína um að örvænta ekki

John McCain forsetaframbjóðandi.
John McCain forsetaframbjóðandi.

Nú þegar rétt liðlega vika er til forsetakosninganna í Bandaríkjunum á John McCain, frambjóðandi Repúblikana, verulega undir högg að sækja gagnvart Barack Obama, helsta keppinauti sínum.

Skoðanakönnun Newsweek bendir til þess að Obama sé með 53% stuðning kjósenda en McCain með stuðning 40% kjósenda. Gallup kannanir benda jafnframt til þess að Obama hafi mun sterkari stöðu en McCain. Fréttastofa NBC segir að Obama sé með meirihluta í nægjanlega mörgum fylkjum til að ná þeim kjörmönnum sem hann þarf til að vinna kosningarnar.

McCain viðurkennir að það sé á brattann að sækja en hvetur stuðningsmenn sína til að örvænta ekki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×