Erlent

Segja Livni hafa gefist upp á að mynda ríkisstjórn

Tzipi Livni fundar á morgun með Shimoni Peres, forseta Ísraels, um stöðu mála.
Tzipi Livni fundar á morgun með Shimoni Peres, forseta Ísraels, um stöðu mála. MYND/AP

Tzipi Livni, leiðtogi Kadima-flokksins í Ísrael, hefur gefist upp á að reyna að mynda ríkisstjórn í landinu. Þetta kemur fram á fréttavef Breska ríkisútvarpsins og er vitnað til orða ráðgjafa hennar.

Livni hefur frá því að hún tók við leiðtogahlutverkinu af Ehud Olmert fyrir rúmum mánuði reynt að mynda ríkisstjórn og hafði sett sér þau tímamörk að ljúka slíkum viðræðum fyrir morgundaginn. Livni hafði aflað stuðnings Verkamannaflokksins en það dugði ekki. Shas-flokkurinn, sem átti aðild að ríkisstjórn Ehuds Olmert, lýsti því yfir í gær að hann tæki ekki þátt í ríkisstjórn Livni. Því er talið líklegt að Lvini boði til kosninga fljótlega.

Hún á fund með Shimoni Peres, forseta Ísraels, klukkan þrjú á morgun og þar mun hún greina forsetanum frá stöðunni. Ef af kosningum verður er líklegt að þær fari fram í febrúar. Þar mun Livni meðal annars etja kappi við Benjamin Netanyahu, leiðtoga Likud-bandalagsins sem er sterkasti stjórnarandstöðuflokurinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×