Erlent

Bensínþjófar beita stolnum númeraplötum

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Það færist nú mjög í vöxt víða um Bandaríkin að fólk beiti ýmsum óvönduðum meðulum til að draga úr eldsneytiskostnaði.

Lögregla líkir því nánast við faraldur að ökumenn skipti númeraplötum sínum út fyrir stolnar plötur og fari svo á næstu bensínstöð og fylli tankinn. Þeir sæta svo lagi og bruna í burtu á ofsahraða án þess að greiða fyrir bensínið.

Í fæstum tilfellum hefur starfsfólk bensínstöðvanna ráðrúm til að stöðva þjófinn og upptökur öryggismyndavéla hafa lítið að segja þegar bílnúmerin reynast vera af allt annars konar bíl og hafa þar að auki yfirleitt verið tilkynnt stolin. Aðrir hafa minna fyrir hlutunum, skrúfa jafnvel plöturnar af og hafa engar á bílnum meðan bensíni er dælt og einn gerði sér lítið fyrir og þakti bílnúmer sín með rakfroðu á meðan hann nappaði dropanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×