Erlent

Brown í Írak

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, kom óvænt til Írak í morgun og ræddi við Nuri al-Maliki forsætisráðherra um stöðu mála í landinu.

Af öryggisástæðum var ekki greint frá því að heimsóknin væri fyrirhuguð.

Meira en 4 þúsund breskir hermenn eru Írak, nánar tiltekið í Basra og þar um kring, en fyrir viku var tilkynnt að fækkað yrði í því liði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×