Kosið í Indiana og Norður-Karólínu 6. maí 2008 09:00
Barack Obama og Hillary Clinton takast nú á í ríkjunum Norður Karólínu og Indíana í forkosningum Demókrata í Bandaríkunum. Stjórnmálaskýrendur segja að um sé að ræða síðustu stóru kosningarnar og að gríðarlegu máli skipti fyrir þau bæði að bera sigur úr býtum. Kosningarnar eru í dag og gefa spár til kynna að um jafna keppni verði að ræða. Samkvæmt fréttastofu CNN leiðir Clinton í könnunum með 48 prósent atkvæða á móti þeim 44 prósentum sem Obama mælist með. Átta prósent eru enn óákveðin. Barack Obama sagði í gærkvöldi að kosningin í Indíana gæti haft úrslitaáhrif og mögulega yrði unnt að skera úr um hvort þeirra verði forsetaframbjóðandi demókrata í kosningunum í Nóvember. Í Norður Karólínu hefur Hillary hins vegar dregið á Obama á síðustu dögum en þar hafði hann náð nokkru forskoti. Hvorugur frambjóðandinn hefur náð að tryggja sér nægilega marga kjörmenn til að vera öruggur um útnefningu flokks síns og hallast margir að því að svokallaðir ofurkjörmenn þurfi að skera úr um hvor fari með sigur af hólmi. Ofurkjörmennirnir hafa meira vægi á flokksþinginu sem á endanum velur frambjóðandann og eru þeir ekki kosnir eins og aðrir kjörmenn heldur er um áhrifamenn innan flokksins að ræða.
Mest lesið Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 Innlent Lúsmýi fækkar en moskítóflugan ekki dauð úr öllum æðum Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Innlent Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Sjá meira