Erlent

Búist við meiri skógareldum í Bandaríkjunum

Almannavarnir á Vesturströnd Bandaríkjanna hafa nú miklar áhyggjur af því að viðvarandi þurrkar á þessum slóðum muni kveikja mun umfangsmeiri skógarelda en þá, sem Kaliforníubúar glíma við og hafa ekki séð fyrir endan á.

Þurrir vindar og hitastig í kringum 38 gráður á celsíus skapa góð skilyrði fyrir skógarelda. Alls eru um 1.000 km af fjalllendi meðfram allri ströndinni nú taldir vera hættusvæði af þessum sökum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×