Erlent

Ísraelar og Líbanar hefja fangaskipti

SHA skrifar

Skipti á föngum milli Ísraels og Hizbollah skæruliðasamtakanna í Líbanon fara fram í dag.

Skiptin hófust með því að Hizbollah létu Ísraelsmenn fá aftur líkamsleifar tveggja hermanna en þeim var rænt í árás fyrir tveimur árum síðan. Ættingjar hermannanna höfðu reyndar allt til dagsins í dag haldið í vonina að þeir væru enn á lífi.

Í staðinn mun Ísrael láta af hendi fimm líbanska fanga og einnig lík tvö hundruð líbanskra og palestínskra manna sem fallið hafa í bardögum.

Skiptin eru í höndum Rauða krossins en þau hafa mætt nokkurri andstöðu meðal stjórnmálamanna í Ísrael sem telja fimm lifandi fangar of hátt verð fyrir tvö lík. Aðrir hafa hins vegar sagt það siðferðislega skyldu ísraelskra stjórnvalda að koma líkamsleifum mannanna aftur til Ísraels.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×