Sérsveitarmenn búa sig undir frelsun gísla í Mumbai 27. nóvember 2008 11:10
Fyrir skömmu varð enn ein sprenging nálægt Taj hótelinu í Mumbai. Herlið býr sig nú undir að ráðast til inngöngu í Taj og Oberoi hótelin í borginni ásamt ísraelskri menningarmiðstöð. Umsátursástand hefur ríkt við hótelin, þar sem hryðjuverkamenn sem sagðir eru tilheyra samtökunum Deccan Mujahideen halda fólki í gíslingu. Meira en 100 eru látnir og 315 særðir eftir sprengjuárásir í borginni í gær. Lögregla segir tilræðismennina hafa verið vel skipulagða þegar þeir lögðu til atlögu á mörgum stöðum samtímis um klukkan hálfsex í gærkvöldi að íslenskum tíma. Meðal annars féllu tugir manna á járnbrautarstöð í Mumbai þar sem árásarmennirnir beittu handsprengjum og hríðskotabyssum gegn mannfjölda sem átti erfitt með að koma sér undan sökum þrengsla. Þá varð hótelið Taj Mahal illa úti í árásinni ásamt fleiri hótelum og Cama-sjúkrahúsið varð einnig fyrir árás. Svo virðist sem árásarmennirnir hafi miðað út staði þar sem búast mátti við að erlendir ferðamenn hittust fyrir. Mikil ringulreið ríkir í Mumbai og eldar loga enn víða. Ester Ágústa Berg, sem býr í Mumbai, yfirgaf eitt hótelanna sem ráðist var á örfáum mínútum áður en það gerðist. Fjölskylda hennar er ekki í hættu en mikil óvissa ríkir í borginni um framtíðaröryggi íbúanna, sagði Ester Ágústa í viðtali við Vísi í morgun.
Mest lesið Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Erlent Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Erlent Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Innlent Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Erlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Erlent Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Innlent Segir þúsundir hafa dáið á grimmilegan máta Erlent Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Innlent Fleiri fréttir Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Segir þúsundir hafa dáið á grimmilegan máta Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Macron: „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur“ Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Þyrfti líklega að leggja toll á allt Evrópusambandið Reyna að rjúfa nettenginu endanlega Boðar 10 prósenta toll á Norðurlönd, Breta, Frakka, Þjóðverja og fleiri Þúsundir baula á bandaríska sendiherrann Ítalir lögðu hald á skip frá Rússlandi Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila Bein útsending: Flytja fimm þúsund tonna eldflaug á skotpall fyrir tunglskot Danmörk „pínulítið land“ með „pínulítinn her“ Hótar tollum á ríki sem standa með Grænlendingum Hafa náð einu og hálfu prósenti af Úkraínu á þremur árum Milljónir Bandaríkjamanna hafi þungar áhyggjur vegna Grænlands Yfirvöld sögð rukka háar fjárhæðir fyrir afhendingu líka mótmælenda Fyrrverandi forseti dæmdur í fimm ára fangelsi „Þetta er ekki það sem við samþykktum“ Tók við verðlaunapeningnum og hyggst eiga hann Hafi afhent Trump Friðarverðlaun Nóbels Krefjast enn að fá að senda sérsveitarmenn til Mexíkó Veiki geimfarinn kominn aftur til jarðar Tóku enn eitt skipið Trump hótar að siga hernum á mótmælendur Kennir Selenskí enn og aftur um Sjá meira
Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila