Foreldrar sex ára fegurðardrottningar drápu hana ekki SB skrifar 9. júlí 2008 22:30 Dauði fegurðardrottningarinnar barnungi heldur áfram að ásækja Bandaríkjamenn.
Yfirvöld i Bandaríkjunum hafa loksins hreinsað fjölskyldu JonBenet Ramsey af grun um að hafa átt hlut í dauða hennar. JonBenet var drepin árið 1996 þegar hún var sex ára og dáð fegurðardrottning í heimabæ sínum. Morðið á JonBenet er eitt umtalaðasta morðmál Bandaríkjanna. Litla stúlkan hafði nýlega verið krýnd fegurðardrottning í fegurðarkeppni sem haldin var fyrir börn þegar hún fannst myrt skammt frá heimili sínu. Foreldrar JonBenet voru harðlega gagnrýndir fyrir að hafa ýtt henni út í slíka keppni og voru frá upphafi grunuð um að hafa valdið dauða hennar með einum eða öðrum hætti. Ekkert gekk hins vegar í rannsókninni. Tíu árum eftir morðið komst málið aftur í hámæli þegar bandarískur maður, John Mark Kerr var handtekinn í Tælandi eftir að hafa játað á sig málið. Síðar kom í ljós að hann hafði sjúklegan áhuga á málinu en hafði ekki drepið stúlkuna. Nú er morðið á JonBenet aftur komið í heimsfréttirnar. Með nýrri DNA tækni tókst rannsóknaraðilum að útiloka fjölskyldu JonBenet af lista grunaðra. Náðst hafa DNA sýni sem sanna að ókunnur karlmaður hafi handfjatlað stúlkuna áður en hún dó. Næsta skref í rannsókninni er að bíða eftir að DNA mannsins komi fram í gagnagrunnum í Bandaríkjunum.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Fleiri fréttir Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Saka borgina um að víkja sér undan ábyrgð Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Sjá meira