Blettasóti ver hreiður sitt með kjafti og klóm Atli Steinn Guðmundsson skrifar 23. júní 2008 08:43 MYND/AP
Fjöldi vegfarenda í og við bandarísku borgina Chicago hefur orðið fyrir óvæntum loftárásum síðustu daga sem þó er reyndar árviss viðburður. Margir hafa átt fótum fjör að launa, sumir brugðið á það ráð að fara aðra leið til og frá vinnu og aðrir hafa hreinlega fengið sér hjálm. Vágesturinn er þó ekki hryðjuverkamaður eða vopnaður ræningi heldur blettasóti, lítill svartur fugl með rautt í vængjunum. Hreiðurgerð stendur um þessar mundir sem hæst hjá tegundinni og ræðst karlfuglinn á alla sem koma nálægt hreiðrinu, hvort sem um menn eða dýr er að ræða. Vinsælustu bústaðir blettasótans eru í hvers kyns lággróðri og sérstaklega nálægt vötnum. Einhverjir vegfarendur sem orðið hafa fyrir því að goggað sé í hvirfil þeirra oftar en einu sinni hafa lagt lykkju á leið sína til að forðast tjarnir og hjólreiðamenn eru margir þakklátir hjálminum. Ásóknir fuglsins virðast gefa skæðustu draugum íslenskra þjóðsagna lítið eftir og má að sögn fuglafræðinga búast við að blettasótinn ráðist til atlögu í allt að 100 metra fjarlægð frá hreiðrinu. Chicago-búar geta þó senn andað léttar því hremmingunum lýkur yfirleitt um miðjan júlí.
Mest lesið Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Átökin ná nýjum hæðum Erlent Blasi illa við að það eigi að troða áformunum í gegnum kerfið Innlent Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Innlent Þjófar réðust á starfsmann verslunar Innlent Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Innlent Metfjöldi sjálfsvígssímtala og hætt við þjónustuskerðingu Innlent Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Erlent Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP Innlent Ökumaðurinn hefur gefið sig fram Innlent Fleiri fréttir Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Einhliða vopnahlé Rússa hafið Vesturlönd þurfa að borga milljarðatjón af árás Rússa á Tsjernobyl Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Herþota hrapaði til jarðar í Finnlandi Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Misstu aðra herþotu í sjóinn Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Indland gerir árás á Pakistan Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Merz náði kjöri í annarri tilraun Niðurlægjandi fyrir Merz og AfD krefst þingkosninga á ný Sjá meira