Innlent

Móðurfélag álþynnuverksmiðju selt að hluta

Móðurfélag álþynnuverksmiðjunnar á Akureyri hefur verið selt frá Ítalíu til Þýskalands. Verksmiðjan í Eyjafirði er ekki sögð í hættu, þrátt fyrir breytt eignarhald. En hnökrar hafa komið upp milli félagsins og verðandi starfsmanna.

Reiknað er með að 100 manns fái störf við álþynnuverksmiðju Becromal á Krossanesi við Eyjafjörð sem nú er verið að reisa. Því er mikið undir og brá umsækjanda um eitt starfanna í brún nú í vikunni þegar ráðningarferli hans lamaðist óvænt rétt áður en gengið var frá ráðningu.

Var honum í kjölfarið tjáð að eigendaskipti hefðu orðið hjá Becromal og sá starfsmaður sem séð hefði um hans mál væri hættur störfum. Fréttastofa kannaði þetta í morgun og staðfestir Magnús Ásgeirsson, framkvæmdastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar, að þýskir aðilar hafi keypt fyrirtækið af Ítölunum.

Á blaðamannafundi sem fram fór á Akureyri fyrir skömmu töluðu Ítalirnir fjálglega um verkefnið, hve einstætt og umhverfisvænt það væri og ræddu mögulega stækkunverksmiðjunnar í framtíðinni. Spurður hvort efnahagsástandið á Íslandi kunni að fæla fjárfesta frá og að verkefnið í Krossanesi kunni að komast í tvísýnu vegna nýrra eigenda neitaði hann því og benti á að stofnkostnaður við verksmiðjuna hafi lækkað verulega miðað við áætlanir vegna gengismála.

Hitt kannist hann við að óánægja sé hjá umsækjendum um störf í verksmiðjunni á Krossanesi vegna þess að Becromal hafi einungis notað útlenda starfsmenn sína til að sjá um mannaráðningar. Ráðningarferlið sé að sumu leyti framandi fyrir íslenska umsækjendur auk þess sem tungumálavandræði kunni að koma upp.

Fyrrum eigendur Becromal staðhæfðu að framleiðsla hefjist á Akureyri fyrir jól.

Athugasemd frá Fréttastofu Stöðvar 2: 

<!-- /* Font Definitions */ @font-face {font-family:"Cambria Math"; panose-1:2 4 5 3 5 4 6 3 2 4; mso-font-charset:0; mso-generic-font-family:roman; mso-font-pitch:variable; mso-font-signature:-1610611985 1107304683 0 0 159 0;} @font-face {font-family:Calibri; panose-1:2 15 5 2 2 2 4 3 2 4; mso-font-charset:0; mso-generic-font-family:swiss; mso-font-pitch:variable; mso-font-signature:-1610611985 1073750139 0 0 159 0;} /* Style Definitions */ p.MsoNormal, li.MsoNormal, div.MsoNormal {mso-style-unhide:no; mso-style-qformat:yes; mso-style-parent:""; margin:0cm; margin-bottom:.0001pt; mso-pagination:widow-orphan; font-size:12.0pt; font-family:"Times New Roman","serif"; mso-fareast-font-family:Calibri; mso-fareast-theme-font:minor-latin;} .MsoChpDefault {mso-style-type:export-only; mso-default-props:yes; font-size:10.0pt; mso-ansi-font-size:10.0pt; mso-bidi-font-size:10.0pt;} @page Section1 {size:612.0pt 792.0pt; margin:70.85pt 70.85pt 70.85pt 70.85pt; mso-header-margin:35.4pt; mso-footer-margin:35.4pt; mso-paper-source:0;} div.Section1 {page:Section1;} -->

„Vegna fréttar okkar í hádeginu skal áréttað að ítalska fyrirtækið Becromal seldi ekki allan hlut sinn heldur 50% fyrirtækisins til þýsks félags. Viðskiptin styrkja enn frekar aflþynnuverksmiðjuna á Akureyri, segir Eyþór Arnalds fjárfestir."

 

 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×