Móðurfélag álþynnuverksmiðju selt að hluta 9. október 2008 12:24
Móðurfélag álþynnuverksmiðjunnar á Akureyri hefur verið selt frá Ítalíu til Þýskalands. Verksmiðjan í Eyjafirði er ekki sögð í hættu, þrátt fyrir breytt eignarhald. En hnökrar hafa komið upp milli félagsins og verðandi starfsmanna. Reiknað er með að 100 manns fái störf við álþynnuverksmiðju Becromal á Krossanesi við Eyjafjörð sem nú er verið að reisa. Því er mikið undir og brá umsækjanda um eitt starfanna í brún nú í vikunni þegar ráðningarferli hans lamaðist óvænt rétt áður en gengið var frá ráðningu. Var honum í kjölfarið tjáð að eigendaskipti hefðu orðið hjá Becromal og sá starfsmaður sem séð hefði um hans mál væri hættur störfum. Fréttastofa kannaði þetta í morgun og staðfestir Magnús Ásgeirsson, framkvæmdastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar, að þýskir aðilar hafi keypt fyrirtækið af Ítölunum. Á blaðamannafundi sem fram fór á Akureyri fyrir skömmu töluðu Ítalirnir fjálglega um verkefnið, hve einstætt og umhverfisvænt það væri og ræddu mögulega stækkunverksmiðjunnar í framtíðinni. Spurður hvort efnahagsástandið á Íslandi kunni að fæla fjárfesta frá og að verkefnið í Krossanesi kunni að komast í tvísýnu vegna nýrra eigenda neitaði hann því og benti á að stofnkostnaður við verksmiðjuna hafi lækkað verulega miðað við áætlanir vegna gengismála. Hitt kannist hann við að óánægja sé hjá umsækjendum um störf í verksmiðjunni á Krossanesi vegna þess að Becromal hafi einungis notað útlenda starfsmenn sína til að sjá um mannaráðningar. Ráðningarferlið sé að sumu leyti framandi fyrir íslenska umsækjendur auk þess sem tungumálavandræði kunni að koma upp. Fyrrum eigendur Becromal staðhæfðu að framleiðsla hefjist á Akureyri fyrir jól. Athugasemd frá Fréttastofu Stöðvar 2: <!-- /* Font Definitions */ @font-face {font-family:"Cambria Math"; panose-1:2 4 5 3 5 4 6 3 2 4; mso-font-charset:0; mso-generic-font-family:roman; mso-font-pitch:variable; mso-font-signature:-1610611985 1107304683 0 0 159 0;} @font-face {font-family:Calibri; panose-1:2 15 5 2 2 2 4 3 2 4; mso-font-charset:0; mso-generic-font-family:swiss; mso-font-pitch:variable; mso-font-signature:-1610611985 1073750139 0 0 159 0;} /* Style Definitions */ p.MsoNormal, li.MsoNormal, div.MsoNormal {mso-style-unhide:no; mso-style-qformat:yes; mso-style-parent:""; margin:0cm; margin-bottom:.0001pt; mso-pagination:widow-orphan; font-size:12.0pt; font-family:"Times New Roman","serif"; mso-fareast-font-family:Calibri; mso-fareast-theme-font:minor-latin;} .MsoChpDefault {mso-style-type:export-only; mso-default-props:yes; font-size:10.0pt; mso-ansi-font-size:10.0pt; mso-bidi-font-size:10.0pt;} @page Section1 {size:612.0pt 792.0pt; margin:70.85pt 70.85pt 70.85pt 70.85pt; mso-header-margin:35.4pt; mso-footer-margin:35.4pt; mso-paper-source:0;} div.Section1 {page:Section1;} --> „Vegna fréttar okkar í hádeginu skal áréttað að ítalska fyrirtækið Becromal seldi ekki allan hlut sinn heldur 50% fyrirtækisins til þýsks félags. Viðskiptin styrkja enn frekar aflþynnuverksmiðjuna á Akureyri, segir Eyþór Arnalds fjárfestir."
Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Innlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Sjá meira