Erlent

Sarkozy ætlar að mæta á Olympíuleikana

Nicolas Sarkozy forseti Frakklands segir að hann muni verða viðstaddur opnunarhátíðina á Olympíuleikunum í Bejing í Kína síðar í mánuðinum.

Væntingar höfðu verið um að Sarkozy myndi ekki mæta á hátíðina eins og fjöldi annarra evrópskra leiðtoga en Frakkland leiðir Evrópusambandið þessa stundina. Verður Sarkozy því fulltrúi þess og Frakklands.

Þessi ákvörðun Sarkozy hefur vakið mikla reiðir meðal mannréttindasamtaka í Evrópu sem hvatt af til þess að olympíuleikarnir verði sniðgengnir vegna ástandsins í Tíbet.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×