Sumarljós frumsýnd í Þjóðleikhúsinu í kvöld 26. desember 2008 13:07 Vignir Rafn Valþórsson fer með eitt aðalhlutverkanna í Sumarljósi.
Jólafrumsýning Þjóðleikhússins er leikgerð byggð á skáldsögunni Sumarljós, og svo kemur nóttin eftir Jón Kalman Stefánsson. Leikritið Sumarljós verður frumsýnt á Stóra sviðinu í kvöd í leikstjórn Hilmars Jónssonar, sem jafnframt er höfundur leikgerðarinnar. Í Sumarljósi kynnumst við íbúum í litlu íslensku þorpi. Hversdagslífið þar reynist fullt af stórviðburðum því undir kyrrlátu yfirborði krauma óhamdar ástríður, langanir og þrár. Girndin hnýtir saman daga og nætur, lostinn leitar á þorpsbúana og enginn vill vera einn í nóttinni. Hvers vegna fórnar forstjóri Prjónastofunnar fallegri konu, jeppa og stöðu sinni í samfélaginu til þess að geta horft út í stjörnubjartan næturhiminn? Vissuð þið að Matthías er kominn heim, eftir áralanga dvöl í frumskógum Amazon? Hvað rekur Kristínu út að hlaupa á hverjum degi? Er hægt að hverfa inn í rökkrið? Er kannski best að tala um ástina á íslensku við mann sem aðeins skilur arabísku? Ætli það gerist eitthvað á ballinu? Hvað er það sem brennur á hlaðinu á Sámsstöðum? Og hver ber eiginlega ábyrgð á nóttinni? Verk Jóns Kalmans hafa notið mikilla vinsælda á undanförnum árum, enda ná þau að lýsa veruleika okkar af undraverðu næmi fyrir ýmsu því býr undir yfirborðinu í lífi okkar. Þetta er fyrsta leikgerð byggð á verki eftir Jón Kalman en hann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Sumarljós, og svo kemur nóttin, sem kom út hjá forlaginu Bjarti árið 2005. Leikmynd sýningarinnar gerir Finnur Arnar Arnarson en um búninga sér Þórunn María Jónsdóttir. Ragnhildur Gísladóttir er höfundur tónlistar og Sveinbjörg Þórhallsdóttir sér um sviðshreyfingar. Ljósahönnuður er Lárus Björnsson. Aðstoðarmaður leikstjóra er Jón Atli Jónasson. Leikarar eru Baldur Trausti Hreinsson, Birna Hafstein, Björn Hlynur Haraldsson, Edda Arnljótsdóttir, Eggert Þorleifsson, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir, Esther Talía Casey, Friðrik Friðriksson, Jörundur Ragnarsson, Ólafur Darri Ólafsson, Ragnheiður Steindórsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Valur Freyr Einarsson, Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Vignir Rafn Valþórsson.
Mest lesið Eigandi lúxushótels selur miðbæjarperlu Lífið „Þessu hef ég verið háður býsna lengi“ Lífið „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Tónlist Lúxusferðaforstjóri og kaupmaður selja í gamla Vesturbænum Lífið Þú færð ekki leikskólapláss en svona á að halda barnaafmæli Lífið Svona sjá Pétur og Heiða leikskólavandann Lífið Eyddi kröfulistanum sem hann birti í gríni Lífið Trölli stelur jólunum í Borgarleikhúsinu Menning Rosalia komin með skvísu upp á arminn Lífið Bergþór og Laufey selja slotið Lífið Fleiri fréttir „Þessu hef ég verið háður býsna lengi“ Eigandi lúxushótels selur miðbæjarperlu Lúxusferðaforstjóri og kaupmaður selja í gamla Vesturbænum Þú færð ekki leikskólapláss en svona á að halda barnaafmæli Sólveig Anna greinir woke-ið Bergþór og Laufey selja slotið Svona sjá Pétur og Heiða leikskólavandann Eyddi kröfulistanum sem hann birti í gríni Rosalia komin með skvísu upp á arminn „Og leynigesturinn er enginn annar en…“ Inga Tinna selur höllina í Borgartúni Kiefer Sutherland handtekinn grunaður um líkamsárás Sjóðheit trend sem taka yfir á nýju ári Innflytjendamálin eru fíllinn í stofunni Júnía Lín komin í milljónaklúbbinn Skóli við rætur Vatnajökuls Faðir Dilberts allur Tvö ár af ást hjá Charlie og Laufeyju Slíðruðu sverðin á árshátíð borgarstjórnar Diddy selur svörtu einkaþotuna Gummi Tóta og Guðbjörg eiga von á öðru barni Ragnheiður fékk heilablóðfall á Spáni „Hvaða rugl er þetta?“ „Besti tími lífs míns hingað til“ Spá Ísrael sigri marga mánuði fram í tímann „Minnstur aldursmunur á okkur af öllum pörum“ Fannar og Jói böðuðu hvor annan Fjölmenni í Tene-afmæli Gurrýjar en enga Sólrúnu Diego að sjá „Litlu kóngarnir“ sjaldan verið heitari Þessi nældu sér í verðlaun á Golden Globe Sjá meira