Deilt um handtöku „slátrarans frá Bosníu“ Atli Steinn Guðmundsson skrifar 23. júlí 2008 11:47 Radovan Karadzic. MYND/AP
Slátrarinn frá Bosníu svonefndi, Radovan Karadzic, mun áfrýja serbneskum dómsúrskurði um framsal til stríðsglæpadómstólsins í Haag. Þetta segir verjandi Karadzic, Sveta Vujacic, sem enn fremur heldur því fram að serbnesk yfirvöld segi ekki allan sannleikann um handtöku mannsins sem meðal annars er talinn er hafa á samviskunni líf 8.000 múslima sem teknir voru af lífi í bænum Srebrenica í austurhluta Bosníu sumarið 1995. Karadzic er sagður hafa verið handtekinn á mánudag en Vujacic fullyrðir að hann hafi í raun verið tekinn á föstudag og haldið á laun yfir helgina. Vojislav Kostunica, fyrrum forsætisráðherra Serbíu, hefur einnig gagnrýnt handtökuna og haldið því fram að stríðsglæpadómstóllinn sé ólöglegur. Slátruðu hundruðum þúsunda Radovan Karadzic var leiðtogi Bosníu-Serba í borgarastyrjöldinni 1992 - 1995 sem fylgdi í kjölfar aðskilnaðar Bosníu-Herzegóvínu frá þáverandi Júgóslavíu. Talið er að hermenn Karadzic hafi slátrað hundruðum þúsunda múslima og Króata þegar þjóðernishreinsanirnar svokölluðu stóðu yfir en Karadzic var þá forseti Serbneska lýðveldisins í Bosníu-Herzegóvínu. Um tíma var talið að 300.000 múslimar hefðu týnt lífi í stríðinu en nýlegar athuganir gefa til kynna að þeir hafi verið nær 100.000. Karadzic sást síðast opinberlega árið 1996. Hann er geðlæknir að mennt og fór, að sögn serbneskra yfirvalda, huldu höfði árum saman og stundaði lækningar undir fölsku nafni. Að Karadzic handteknum er hershöfðinginn fyrrverandi, Ratko Mladic, náinn samverkamaður hans, talinn hættulegasti stríðsglæpamaður sem enn gengur laus og eru stjórnvöld í Serbíu hvött til að hafa hendur í hári hans, meðal annars af sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. CNN greindi frá.
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent Fagnað á götum Kabúl Erlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Fannst hann ekki geta haldið áfram Erlent Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Innlent Fleiri fréttir Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump Sjá meira