Kærð fyrir ólöglega verslun með hluta af 1.007 líkum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 30. apríl 2008 23:02 Myndin tengist ekki þessari frétt. MYND/Pjetur Sigurðsson
Fjöldi fjölskyldna í bandarísku borgunum New York, New Jersey og Pennsylvania hefur lagt fram kærur á hendur sjö manns, nokkrum útfararþjónustufyrirtækjum og fyrirtækjum sem hafa milligöngu um verslun með líkamsvefi. Er hinum stefndu gefið að sök að hafa ólöglega komist yfir og selt ýmsum sjúkrahúsum líkamshluta af 1.007 látnum manneskjum til notkunar við í- og ágræðslur þar sem lifandi sjúklingar áttu í hlut. Talið er að hagnaður líkamshlutasalanna nemi um 3,8 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði um 283,3 milljóna króna. Er hinum grunuðu gefið að sök að hafa látið líkin líta eðlilega út við kistulagnir og jarðarfarir með ýmsum uppfyllingarefnum, t.d. járnrörum. Einnig er þess getið í kærunum að sökunautarnir hafi falsað fjölda skjala þar sem ýmsum aðilum er veitt leyfi til að ráðstafa líffærum í samræmi við óskir meintra ættingja. Í einu tilfellanna átti eiginkona látins manns að hafa veitt skriflegt leyfi sitt en við eftirgrennslan kom í ljós að maðurinn hafði aldrei verið kvæntur þeirri konu sem ritaði nafn sitt undir skjalið. Gert er ráð fyrir að réttarhöldin hefjist í haust.
Mest lesið Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðarvogi Innlent Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Erlent Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Haraldur Briem er látinn Innlent Nýir ofnar skemmast vegna súrefnis í heita vatninu Innlent Fleiri eldislaxar í Haukadalsá: „Þetta lítur alls ekki vel út“ Innlent Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Erlent Segir dæmi um að fjölskyldur hafi lokað á fólk vegna BDSM Innlent Helgi Vilberg Hermannsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Hitamet falla og gróðureldar geisa í Evrópu og víðar Rússar myndu nota Donbas til að ráðast enn lengra inn í Úkraínu Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Greta Thunberg siglir á ný til Gasa Skoða að stofna viðbragðssveit gegn uppþotum í Bandaríkjunum Hernumin héruð horfi fram á þjóðernishreinsun Vara við afleiðingum samsæriskenninga eftir skotárás á heilbrigðisstofnun Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Smyglaði 850 skjaldbökum í sokkum frá Bandaríkjunum Albanese segir Netanyahu í afneitun Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Leiðtogar Evrópu ítreka sjálfsákvörðunarrétt Úkraínumanna Einn látinn og tíu slasaðir eftir stóra sprengingu „Þetta er í rauninni þreifingafundur“ Ákvörðun Trump valdabrölt: „Það á eftir að verða meira svona“ Sjá meira