Erlent

Bandaríkjamenn semja við Tékka um eldflaugavarnir

SHA skrifar

Bandaríkin og Tékkland skrifuðu í dag undir samkomulag sem leyfir stjórnvöldum í Washington að byggja upp eldflaugavarnarkerfi í landinu. Kerfið í Tékklandi er hluti af enn stærra kerfi sem Bandaríkjastjórn hyggst koma upp í Evrópu en það hefur mætt mikilli andstöðu ráðamanna í Rússlandi.

Condoleezza Rice og Karel Schwarzenberger, utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Tékklands, skrifuðu undir samkomulagið í Prag og þar undirstrikaði Rice mikilvægi eldflaugavarnarkerfisins. Sagði hún að kerfið væri sérstaklega hannað til að koma í veg fyrir flugskeytaárásir frá óvinalöndum á borð við Íran.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×